ATH! Nú má byggja allt að 15fm hús án byggingaleyfis!!
Sumir velta því fyrir sér hvort megi setja hús út í garð án sérstaks leyfis . Svarið er Já!
Það er svo líka gaman frá því að segja að reglurnar voru rýmkaðar með breytingu árið 2016 – hámarksstærð án byggingaleyfis var þá hækkuð úr 10 fm upp 15 fm.
Hér er tilvitnun í nýjustu byggingareglugerð frá 2012 með áorðnum breytingum. Þar segir um smáhýsi á lóð (grein nr. 2.3.5).
Eftirfarandi framkvæmdir og breytingar eru undanþegnar byggingarleyfi enda séu þær í samræmi við deiliskipulag:
a – d ……. (hlaupum yfir lið a-d þar sem þeir snúa ekki að smáhýsum)
g. Smáhýsi á lóð.
Smáhýsi til geymslu garðáhalda o.þ.h. á lóð utan byggingarreits þegar eftirfarandi kröfur eru uppfylltar, enda sé slík bygging ekki óheimil samkvæmt gildandi deiliskipulagi:
-
Flatarmál smáhýsis er að hámarki 15 m².
-
Fjarlægð milli smáhýsa innbyrðis og frá glugga eða hurð húss, svo og frá útvegg timburhúss er a.m.k. 3,0 m.
-
Veggur smáhýsis sem snýr að lóðarmörkum og er nær lóðarmörkum en 3,0 m er glugga og hurðalaus.
-
Mesta hæð útveggja eða þaks á smáhýsi er 2,5 m mælt frá yfirborði jarðvegs.
-
(Smáhýsi er án allra vatnslagna, raflagna og hitunar) – ATH! – Þetta ákvæði hefur verið fjarlægt úr byggingareglugerðinni. Nú er því leyfilegt að hafa allar lagnir í húsum sem eru 15fm eða minni.
-
Ef smáhýsi er nær lóðarmörkum en 3,0 m skal liggja fyrir skriflegt samþykki lóðarhafa þeirrar nágrannalóðar og skal það lagt fram hjá byggingarfulltrúa.
Sjá hér nýjustu byggingareglugerð með áorðnum breytingum.
.
.
.
.
.
.